Ábreiða

Aldur kringum 1865. Útsaumuð ábreiða, strammi, grófur sem í hefur verið saumað með ullargarni rósamunstur og er það í öllum regnbogans litum. Upp fyllt með svörtu ullargarni. Fóðrað á bakhlið með fjólubláu efni og á köntum er hún brydduð með rauðri leggingu. Við annan endann er negldur trélisti, til þess að hægt sé að hengja upp á vegg. Var í eigu Karítasar Markúsdóttur en hún var dóttir Kristínar Þorgrímsdóttur. Sagt er að ábreiðan hafi verið lánuð þegar heldri borgarar giftu börn sín til að krjúpa á. Guðrún, dóttir Karítasar, eignaðist ábreiðuna á eftir hennar dag. Hún lagaði ábreiðuna með því að fylla hana upp aftur og hún notaði hana fyrir veggteppi. Ábreiðan var síðast í eigu sonar Guðrúnar, Tryggva Briem, en hann lést 12. mars 1975. Sjá fylgibréf Aðfangabókar dags. 31.12.1975.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 1975-241
Stærð
211 x 141 x 0 cm Lengd: 211 Breidd: 141 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ábreiða