Ábreiða

In preservation at
National Museum of Iceland
Aldur kringum 1865.
Útsaumuð ábreiða, strammi, grófur sem í hefur verið saumað með ullargarni
rósamunstur og er það í öllum regnbogans litum. Upp fyllt með svörtu ullargarni.
Fóðrað á bakhlið með fjólubláu efni og á köntum er hún brydduð með rauðri
leggingu. Við annan endann er negldur trélisti, til þess að hægt sé að
hengja upp á vegg. Var í eigu Karítasar Markúsdóttur en hún var dóttir
Kristínar Þorgrímsdóttur. Sagt er að ábreiðan hafi verið lánuð þegar heldri
borgarar giftu börn sín til að krjúpa á. Guðrún, dóttir Karítasar, eignaðist
ábreiðuna á eftir hennar dag. Hún lagaði ábreiðuna með því að fylla hana
upp aftur og hún notaði hana fyrir veggteppi. Ábreiðan var síðast í eigu
sonar Guðrúnar, Tryggva Briem, en hann lést 12. mars 1975. Sjá fylgibréf
Aðfangabókar dags. 31.12.1975.
Main information
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1975-241
Dimensions
211 x 141 x 0 cm
Lengd: 211 Breidd: 141 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Ábreiða