Munsturbók

1700 - 1800
Sjónabók (munsturbók), fremur lítil, í brúnu skinnbandi. Í bókinni eru ýmis munstur og upphafsstafir, teiknuð og máluð, og stundum límd, á bakhliðar sendibréfa og annarra bréfa, skrifaðra og prentaðra. Blöðin eru mjög mis-gömul, sjá má m.a. ártölin 1747, 1748, 1786 og 1824. Bókin hefur verið innbundin en bandið er nú allt laust og blöðin því laus í kápu. Blöðin eru líka öll fremur illa farin, mjög trosnuð á brúnum og bókin þar af leiðandi mjög viðkvæm. Hún er engu að síður mjög snotur gripur. Ætla má að bókin sé frá 18. öld, og þá væntanlega frekar efri hluta 18. aldar. Gefandi er Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, þulur á RÚV, en bókin hafði áður verið í eigu Guðrúnar Eiríksdóttur (f. 1878, d. 1967) sem var eins konar „fósturamma“ hennar. Í meðfylgjandi bréfi segir (sjá möppu: Fylgiskjöl Aðfangabókar): „Sjónabók úr eigu Guðrúnar Eiríksdóttur. Gjöf til Þjóðminjasafns Íslands frá Ragnheiði Ástu Pétursdóttur Guðrún Eiríksdóttir var fædd 2. október 1878 í Öðrumgarði í Nesjum, Hornafirði. Þar heitir nú Brekkubær. Guðrún var dóttir hjónanna Eiríks Pálssonar frá Dilksnesi í Nesjum og Guðnýjar Gísladóttur frá Brunnhól á Mýrum. Þau Eiríkur og Guðný bjuggu af litlum efnum í Öðrumgarði. Eignuðust 7 börn. Þrjá syni misstu þau úr barnaveiki, alla í frumbernsku, en þrjár dætur komust til fullorðinsára. Guðrún fór til læknishjónanna Þorgríms Þórðarsonar og Jóhönnu Andreu Ludvigsdóttur Knudsen að Borgum í Nesjum þá er hún var 10 ára gömul. Þangað fór hún sem tökubarn og barnfóstra. Hún fluttist til Keflavíkur með læknishjónunum og fjölskyldu þeirra og dvaldist síðan með þeim og síðar dótturdóttur þeirra, Birnu Jónsdóttur og manni hennar, Pétri Péturssyni*. Guðrún lést í Reykjavík 1. ágúst 1967. Móðir Guðrúnar, Guðný Gísladóttir, vann heimili sínu með því að ganga á milli bæja og vefa hvers kyns vefnað. Mun hún hafa lært það á æskustöðvum sínum á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu. Guðný þótti með afbrigðum velvirk við alla ullarvinnu. Eigi er fullljóst hvaðan bókin kom í hendur Guðrúnar. Hún eignaðist ekki marga muni um ævina, en þessi bók var henni mjög kær, gefin henni af aldraðri konu á æskustöðvum hennar. Guðrún Eiríksdóttir var ágætlega vel greind, fróð og minnug og hafði góða frásagnargáfu. Lét henni einkar vel að segja börnum til við lestur og nám. Þá var hún verklagin og snyrtileg í störfum og gekk rösklega og vel að hverju verki sem hún vann. Hugur hennar stóð til menntunar, en kjör hennar leyfðu eigi annað nám en vetrardvöl í Hússtjórnarskóla Ingunnar Jónsdóttur og Hólmfríðar Gísladóttur. Ofanritað skrifaði móðir mín, Birna Jónsdóttir. Hún gaf mér bókina fyrir mörgum árum. Mér þykir líklegt að aldraða konan, sem Guðrún Eiríksdóttir fékk bókina frá, hafi verið Guðbjörg Sigurðardóttir á Reiðará og Stafafelli í Lóni. Reykjavík 30. nóvember 2007 Ragnheiður Ásta Pétursdóttir.“

Aðrar upplýsingar

Ártal
1700 - 1800
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2007-45
Stærð
16 x 11 x 1.3 cm Lengd: 16 Breidd: 11 Hæð: 1.3 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Sjá möppu: Fylgiskjöl Aðfangabókar. Þar er að finna, auk ofanskrifaðs bréfs frá gefanda, minningargrein um Guðrúnu Eiríksdóttur.