Hökull

Úr aðfangabók: Gamall hökull úr rauðu flaueli með gylltum 2 cm breiðum borða meðfram kanti og í kross að framan. Krossinn að framan er 4 cm breiður. Hökullinn er kræktur saman á annarri öxlinni. Lá í rusli á kirkjulofti Hofskirkju og var að eyðileggjast ásamt fleiri munum eins og prestshempu frá Pétri Ingjaldssyni (sjá nr.1988-158). og tveimur höklum sjá númer 221 og 220. Kirkjur Íslands, 8.bindi, bls. 156: ... og krossi á baki úr sams konar borða tvílögðum, fóðrið úr baðmunnlarlérefti. Sídd að aftan úr hálsmáli 75 cm, að framan 68 cm, lítt skemmdur. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 4.5.2011)

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 1988-222
Stærð
80 x 56 cm Lengd: 80 Breidd: 56 cm
Staður
Staður: Hofskirkja á Skagaströnd, Kirkjan, 545-Skagaströnd, Húnabyggð, Skagaströnd, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hökull
Heimildir
Kirkjur Íslands. 8.bindi. Ritstjórar: Jón Torfason, Þorsteinn Gunnarsson. Reykjavík, 2006.

Upprunastaður

65°54'23.3"N 20°19'18.9"W