Borðdúkur

Þykkur, ofinn borðdúkur með blómamynstri, grænn að lit. Dúkurinn er frekar illa farinn, komin á hann göt á nokkrum stöðum og hann er blettóttur og nokkuð eyddur. Dúkurinn kom upphaflega til safnsins 26.8.1988 ásamt öðrum munum (1988-158, 1988-220,221,222) en varð viðskila við þá muni. Hann fannst svo aftur og var þá skráður á ný í aðfangabók (19.12.1989). Munirnir höfðu legið í rusli á kirkjulofti Holtskirkju og voru að eyðileggjast þegar ákveðið var að afhenda þá til Þjóðminjasafnsins.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 1989-124
Stærð
145 x 145 x 0 cm Lengd: 145 Breidd: 145 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Hofskirkja á Skagaströnd, Kirkjan, 545-Skagaströnd, Húnabyggð, Skagaströnd, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Borðdúkur

Upprunastaður

65°54'23.3"N 20°19'18.9"W