Högnakylfa

1970 - 1985
Þetta er gestaþraut sem gefandi smíðaði er hann var kominn á níræðisaldur. Í bréfi sem fylgir með frá gefanda segir orðrétt: Ungur að árum sá ég samskonar hlut í höndum bræðra minna eitt sinn þegar þeir komu úr verinu, var hann þar notaður sem gestaþraut. Lögun hlutarins varð mér svo minnisstæð að ég gat fyrirhafnarlaust smíðað hann þegar ég var beðin um það, þá komin nokkuð á níræðisaldur. Þá sögu heyrði ég um tilurð kylfunnar, að stríðskempa nokkur átti í höggi við óvin svo ramman að ekki bitu hann nokkur vopn, leitaði hann þá til dverga um smíði á vopni sem að gagni mætti koma, leystu þeir verkið vel og smíðuðu kylfu, sextán gadda, var þar komin Högnakylfa. Í aðfangabók má auk þess lesa þessar upplýsingar hafðar eftir Kristjóni: Bræður hans tveir um tvítugt fóru á skútu á Vestfjörðum, Kristjón var þá 8-9 ára, og er þeir komu heim fóru þeir að reyna að smíða slíka Högnakylfu úr kassafjölum, en Kristjón sá strax hvernig hún ætti að vera og smíðaði, þótt löngu síðar væri. - Þrautin er fólgin í taka kylfuhausinn sundur og setja saman, en hvert stykki verður að vera á réttum stað og má ekki þvinga þau á ranga staði. - Högnakylfan er smíðuð út tekkviði. Á henni eru sextán gaddar eins og í rímunni (?) segir: Sextán gaddar sukku á kaf. Kylfunni fylgir einnig statív eða stóll út tekki sem hægt er að láta skaft hennar sitja á.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1970 - 1985
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1994-108
Stærð
60 x 0 x 0 cm Lengd: 60 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Högnakylfa