Högnakylfa
1970 - 1985

In preservation at
National Museum of Iceland
Þetta er gestaþraut
sem gefandi smíðaði er hann var kominn á níræðisaldur. Í bréfi sem fylgir
með frá gefanda segir orðrétt: Ungur að árum sá ég samskonar hlut í höndum
bræðra minna eitt sinn þegar þeir komu úr verinu, var hann þar notaður
sem gestaþraut. Lögun hlutarins varð mér svo minnisstæð að ég gat fyrirhafnarlaust
smíðað hann þegar ég var beðin um það, þá komin nokkuð á níræðisaldur.
Þá sögu heyrði ég um tilurð kylfunnar, að stríðskempa nokkur átti í höggi
við óvin svo ramman að ekki bitu hann nokkur vopn, leitaði hann þá til
dverga um smíði á vopni sem að gagni mætti koma, leystu þeir verkið vel
og smíðuðu kylfu, sextán gadda, var þar komin Högnakylfa. Í
aðfangabók má auk þess lesa þessar upplýsingar hafðar eftir Kristjóni:
Bræður hans tveir um tvítugt fóru á skútu á Vestfjörðum, Kristjón var þá
8-9 ára, og er þeir komu heim fóru þeir að reyna að smíða slíka Högnakylfu
úr kassafjölum, en Kristjón sá strax hvernig hún ætti að vera og
smíðaði, þótt löngu síðar væri. - Þrautin er fólgin í taka kylfuhausinn
sundur og setja saman, en hvert stykki verður að vera á réttum stað og
má ekki þvinga þau á ranga staði. - Högnakylfan er smíðuð út tekkviði.
Á henni eru sextán gaddar eins og í rímunni (?) segir: Sextán gaddar sukku
á kaf. Kylfunni fylgir einnig statív eða stóll út tekki sem
hægt er að láta skaft hennar sitja á.
Main information
Donor: Kristjón Ólafsson
Dating
1970 - 1985
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1994-108
Dimensions
60 x 0 x 0 cm
Lengd: 60 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Högnakylfa