Upphlutsborði

Borði á vinstri boðang upphluts. Svartur með silfurlitaðri baldýringu. Munstrið er eitt blóm og laufblöð. Slitinn og virðist gerður upp úr skauttreyjuborða. Gæti verið unnin af Sigríði konu Þorsteins á Húsatóftum Jónssonar, móður þeirra Katrínar og Þórdísar sem getur um hér á númerum fyrir framan. Gæti einnig verið eftir Katrínu ömmu þeirra, Þorsteinsdóttur frá Vindási á Landi, en hún var systir Jóns Þorsteinssonar er smíðaði veisluspæni sem eru í Þjms. Eftir Katrínu eldri er baldýringarmunstur nr. 1974:80 og 81. Sjá 1974:76.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 1974-77
Stærð
15 x 5 x 0 cm Lengd: 15 Breidd: 5 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Upphlutsborði