Rjómakanna

1850 - 1911
Rjómakanna úr rauðleir, með gylltum (rauðgylltum) glerungi að utan og niður með börmum innanverðum en hvítum glerungi að innan. Yfir bumbuna að utanverðu er blár glerungur og upphleyptar myndir á hvorri hlið af konu, trjám og einhverju dýri. Kannan hefur verið með haldi en það er nú brotið af. Glerungurinn er orðinn nokkuð eilítið máður og rispaður, annars er kannan í góðu ástandi. Kannan er væntanlega frá síðari helmingi 19. aldar eða frá upphafsárum þeirrar 20. Kannan kom til safnsins frá Petrínu Kristínu Jónsdóttur, sem hafði fengið hana í sumargjöf, sbr. meðfylgjandi upplýsingar á blaði frá gefanda: „Þessa rjómakönnu gaf mér amma mín, Ingibjörg Gísladóttir frá Einarslóni húsmóðir á Malarrifi, fulla af rjóma á sumardaginn fyrsta 1911, enn hún varð fyrir áfalli eins og hún ber með sér handarhaldið brotnaði. Ingibjörg var móðuramma mín. Kannan á að fara til Þjóðminjasafnsins til eignar. Reykjavíkurvegi 31 R. 12/3 1980 Kristín Jónsdóttir“ Gripirnir nr. 2010-29-5 til 10 komu til safnsins 29.6.1998 en áttu ekki að skrást inn í safnið fyrr en fleiri gripir kæmu úr búi Petrínu Kristínar Jónsdóttur eftir hennar dag. Dóttir hennar, Kristín Helgadóttir, kom svo með fleiri gripi úr hennar búi (Þjms. 2010-29-1 til 4) þann 31.5.2010 og þá var ákveðið að skrá alla gripina saman á eitt númer, þ.e. 2010-29. Gripunum fylgdi fjöldi upplýsinga,prentaðra og skrifaðra, sem varðveittar eru í möppu: Fylgiskjöl aðfangabókar. Þetta eru eftirfarandi gögn: Æviágrip Guðbjargar Helgadóttur frá Gíslabæ á Hellnum (f. 21.11.1885). Ljósrit af minningargreinum um Kristínu Jónsdóttur (Petrínu Kristínu Jónsdóttur). Ritgerð um Jóhannes Helgason frá Hellnum, eftir Hildi Margrétardóttur. Ljósrit af grein úr Lesbók Morgunblaðsins, 2. september 2000, um Jóhannes Helgason frá Gíslabæ á Hellnum. Ljósmyndir af gripum eftir Jóhannes Helgason frá Gíslabæ á Hellnum. Gjafabréf til Hellnakirkju varðandi útskorinn ramma eftir Jóhannes Helgason um altaristöflu í kirkjunni. Úrklippur úr dagblöðum um útskorna rammann um altaristöfluna í Hellnakirkju. Ljósrit af uppskrift af ljóði (grafskrift) um Jóhannes Helgason skurðlistamann frá Gíslabæ á Hellnum. Ljóðið Förukarlinn eftir Davíð Stefánsson, handskrifað á tvö blöð. Ljósmynd af Baðstofugafli síðasta Malarrifsbæjarins. Ljósrit af skjalaskrám Borgarskjalasafns Reykjavíkur, úr skjalasafni Kristínar Helgadóttur þar, um hana sjálfa, um móður hennar, og um Guðmund Kristjánsson. Gjafabréf til Þjóðminjasafnsins sem fylgdi gripunum sem bárust 1998 (Þjms. 2010-29-5 til 10). Fleiri gögn. Gersemar þjóðarinnar: Rjómablíða í sumargjöf Sumargjafir hafa tíðkast á sumardaginn fyrsta á Íslandi öldum saman. Þessa rjómakönnu fékk Petrína Kristín Jónsdóttir (1909-2002) að sumargjöf þegar hún var tæplega tveggja ára. „Þessa rjómakönnu gaf mér amma mín Ingibjörg Gísladóttir frá Einarslóni húsmóðir á Malarrifi, fulla af rjóma á sumardaginn fyrsta 1911, enn hún varð fyrir áfalli eins og hún ber með sér handarhaldið brotnaði.“ Þetta skrifaði Kristín í bréfi dagsettu 12. mars 1980, sem fylgdi rjómakönnunni þegar hún var afhent Þjóðminjasafni Íslands til varðveislu. Keramikgripir með kopargljáa, líkum þeim sem er á rjómakönnunni, voru vinsælir í nágrannalöndum okkar á 19. öld. Þá var glerungur stundum notaður til að líkja eftir dýrari málmum eins og silfri, gulli eða kopar. Kannan var framleidd í Englandi, líkast til á síðari hluta 19. aldar. Rjómakannan er úr rauðleir, með koparlituðum (rauðgylltum) glerungi að utan og niður með börmum innanverðum. Að innan er kannan með hvítum glerungi. Yfir bumbuna er blár glerungur og upphleyptar myndir beggja vegna af konu, trjám og hvítum hundi. Konan er klædd kjól, öðrum megin appelsínugulum og hinum megin vínrauðum. Glerungurinn er orðinn eilítið máður og rispaður, en fyrir utan handarhaldið sem vantar, er kannan í góðu ástandi. Hún kom, ásamt fleiri gripum, úr búi Petrínu Kristínar árið 1998, þar á meðal önnur kanna með sams konar kopargljáa. Gripurinn (Þjms-2010-29-6) er varðveittur í safneign Þjóðminjasafns Íslands. Um könnuna má jafnframt lesa í menningarsögulega gagnasafninu Sarpi - www.sarpur.is Umfjöllunin birtist í Menningarblaði Morgunblaðsins, 23. apríl 2026. Fjallað er um gripi í varðveislu Þjóðminjasafnsins í hverju fimmtudagsblaði undir formerkjunum „Gersemar þjóðarinnar”.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1850 - 1911
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2010-29-6
Stærð
9.5 x 0 x 0 cm Lengd: 9.5 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Rjómakanna