Klappstóll

1910 - 1920
Svartur klappstóll, fremur lítill. Grindin er úr járni, svartmáluðu, en seta og bak eru úr strigaefni með svartri húð á sem líkir eftir leðuráferð, einnig svart á lit. Stóllinn hefur um árabil verið í geymslum Þjóðminjasafnsins í Dugguvogi í Reykjavík. Á setuna neðanverða hefur verið skrifað: Fornminjavörður. -1920. Matthías Þórðarson, fyrrum þjóðminjavörður, hefur notað stólinn á ferðum sínum um landið, m.a. er hann skráði gripi í kirkjum landsins, skoðaði og skráði rústir og í fleiri rannsóknar- og skoðunarferðum. Málning hefur mikið flagnað og rispast af grindinni. Bakið er rifið öðrum megin og í setunni hefur efnið losnað út frá annarri af tveimur járnbólum sem þar eru.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1910 - 1920
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2010-16
Stærð
70 x 36 x 40 cm Lengd: 70 Breidd: 36 Hæð: 40 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Klappstóll