Matthías Þórðarson
30.10.1877 - 29.12.1961
Staða
Þjóðminjavörður
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Matthías Septímus Þórðarson var
fæddur að Fiskilæk í Melasveit. Foreldrar hans voru Þórður Sigurðsson
(f. 30.06.1822, d. 22.11.1883) og Sigríður Runólfsdóttir (f. 28.02.1834,
d. 06.06.1891) á Fiskilæk. Hann var albróðir Augusts Flygenring í Hafnarfirði.
Stúd. Rvík 1898. Las norræna
málfr. og fornfr. við háskólann í Kaupmannahöfn 1898-1902. Varð cand.phil.
frá Kaupmannahafnarháskóla 1899. Handavinnukenn. barnask. Rvík 1907-1920,
kennarask. frá stofnun 1908-1921. Stk. stýrimannask. 1907-1908. Aðstoðarm.
við Forngripasafnið (síðar Þjóðminjasafnið) 1907-1908, þjóðminjavörður
1908-1947. Í stjórn Hafnard. Bókmenntafél. 1905-1906. Í stjórn
Bókmenntafél. frá 1912, forseti frá 1946. Form. Fornleifafél. frá
1920. Í Vísindafél. Ísl. frá 1919, form. 1933-1936. Í stjórn
fornritafél. frá stofnun þess 1928. Í sóknarn. Rvíkur frá 1926, og
kirkjugarðsstjórn 1932-1941. Í kirkjuráði 1932-1941. Í byggingar-
og skipulagsnefnd Rvíkur 1924-1925. Í stjórn Heimilisiðnaðarfél.
Ísl. frá stofnun 1913. Form. Samb. ísl. heimilisiðnaðarfél. frá stofnun
1920. Stofnandi Norræna fél. 1922 og var form. þess fyrstu árin.
Sömuleiðis stofnandi fél. Germanía og var form. þess nokkur ár. Í
nefnd um gerð ísl. fána 1913 og gerði frumuppdrætti þess fána, er lögákveðinn
var. Í skjaldamerkjanefnd Rvíkur 1955-1957.
Maki I (27.07.1906): Alvilde
Marie Jensen, f. 20.05.1882. Þau skildu. Börn þeirra: Tenna.
August, verkfr. í Kaupmannahöfn.
Maki II (26.10.1926): Guðríður
Guðmundsdóttir frá Lambhúsum á Akranesi, f. 04.05.1877, d. 26.11.1956).
Barnlaus.
Sjá safnnr. 1925-11. (Skráð í mars
2002 GG, viðbætur skráðar í ágúst 2003 MDB).
Matthías var fornminjavörður frá
ársbyrjun 1908 (formlega settur frá 1. júlí það ár), til 1. des. 1947 eða
um 40 ára skeið. Hann breytti embættisheiti sínu úr fornminjaverði
í þjóðmenjavörð það var þó fyrst árið 1911 sem safnið er kallað Þjóðminjasafn
Íslands á opinberum vettvangi. Enginn hefur verið eins lengi þjóðminjavörður
og hann. (útdregið úr bókinni Þjóðminjasafn í 100 ár. ÞÞ).
Heimildir: Þjóðminjasafn í 100
ár.
Kennaratal á Íslandi,
II. bindi, bls. 6. Útg. Prentsmiðjan Oddi hf., Reykjavík, 1965.
Kennaratal á Íslandi,
IV. bindi, bls. 461. Útg. Prentsmiðjan Oddi hf., Reykjavík, 1987.
Tengd aðföng










