Kanna, óþ. notk.
1900 - 1950

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Kannan er hvít með bláu mynstri.
Efst og neðst á henni er blómamynstur, um miðbikið bekkur með fjórum
kringlóttum myndflötum, sem eru innrammaðir í mynstur (Einhvers konar stílfært
blómamynstur). Á tveim af þessum flötum eru blómamyndir, en á tveim
landslagsmynd með byggingum í fjarska. Á botni er málað merki: (Perr
DM & Sons í kassa). Könnubotninn er nálægt því að vera
ferningur með rúnnuð horn og aðeins innsveigðar hliðar, 11 cm á kant, hornalína
12 cm. Kannan er víðust neðst og mjókkar upp. Við opið er ferningurinn
með innsveigðu hliðarnar 8 cm á kant og hornalínan 9 cm. Kannan hefur
handfang og gagnstætt því vör. Frá bænum að Sveinhúsum í Vatnsfirði.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Kristján Benediktsson
Ártal
1900 - 1950
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1977-131
Stærð
18.5 x 0 x 0 cm
Lengd: 18.5 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Sveinhús, Súðavíkurhreppur, Vatnsfjarðarsveit, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kanna, óþ. notk.
Upprunastaður
65°55'45.1"N 22°28'23.2"W
