Skjöldur, skráð e. hlutv.

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Úr aðfangabók:
Krínglóttur skjöldur úr kopar, sem var undir hinum fyrnefnda hurðarhríng Hann er allur með gegnum-höggnum hríngrósum í býzönskum stíl, sem 3 dýr smjúga í gegnum: rósirnar hafa upprunalega sameinazt í miðjunni, og þá hefir þar ekkert gat verið, en seinna hefir verið höggvið ferhyrnt gat á skjöldinn fyrir kenginn á hurðarhríngnum. þessi skjöldur mun eflaust fyrst hafa verið gjörður til að vera framan á söðli. Eg hefi séð þá öldúngis af sömu gjörð á söðlum.
Kirkjur Íslands (text: Þór Magnússon):
Gripirnir voru sendir safninu af sr. Páli Sigurðssyni í Miðdal árið 1870. Sigurður Guðmundsson telur að hringurinn muni ekki upphaflega úr kirkjuhurð, sem þó er vart ástæða að efa. Ekki var óþekkt, að skildir af reiðbúnaði væru settir undir kirkjuhurðarhringi, svo er t.d. í Haukadal.
(Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 3.2.2011)
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Páll Sigurðsson
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 770
Safnnúmer B: 1870-19
Staður
Staður: Miðdalakirkja, Kirkjan, 806-Selfossi (Reykholt), Bláskógabyggð, Laugardalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skjöldur, skráð e. hlutv.
Heimildir
Kirkjur Íslands. 3. bindi. Ritstjórar: Árni Björnsson, Þorsteinn Gunnarsson. Reykjavík 2002.
Upprunastaður
64°14'39.5"N 20°39'27.3"W





