Kirkjuhurðarhringur

1682
Úr aðfangabók: Kirkjuhurðar-hríngur, sem var þar í kirkjuhurð, á hann er grafið með latínuletri: „gvð. mundvr. odd. son. á. hringenn. með. riettv. og ? G.O.S. Ao. 1682.“ Þetta nafn bendir á, að þessi hríngur hafi ekki upprunalega verið gerður til að vera í kirkjuhurð. Kirkjur Íslands (texti: Þór Magnússon) - 3.bindi; bls. 99: Hurðarhringur úr kopar er í Þjóðminjasafni, [...]. Á hann er grafið með latínuletri nafn Guðmundar Odssonar og ártalið 1682 [...]. Árið 1703 er Guðmundur Oddsson „veislukarl“, líklega ómagi, í Skálholti, 76 ára. Vafalítið er þetta hans nafn. Nafn á hurðarhring er venjulegast þess manns er kirkjuna lét reisa. Guðmundur hefði því getað verið kirkjubóndi í Miðdal. Door ring from Miðdalur Church, bearing the name of Guðmundur Oddsson and the date 1682. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 3.2.2011)

Aðrar upplýsingar

Ártal
1682
Safnnúmer
Safnnúmer A: 769 Safnnúmer B: 1870-18
Staður
Staður: Miðdalakirkja, Kirkjan, 806-Selfossi (Reykholt), Bláskógabyggð, Laugardalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Kirkjur Íslands. 3. bindi. Ritstjórar: Árni Björnsson, Þorsteinn Gunnarsson. Reykjavík 2002..

Upprunastaður

64°14'39.5"N 20°39'27.3"W