Handlína
1800

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Hvít (ljós) handlína úr bómull, en hún e földuð á tvo gagnstæða vegu, en jaðar er á efninu á hina tvo. Bekkur ísaumaður með ídregnu spori er með kantinum allt í kring. Á miðju handlínunnar og í hornum eru ísaumuð munstur með flatsaumi og ídregnu spori. í hverju horni myndar munstrið reit og er einn bókstafur í hverjum þeirra þ.e. D A C N.* Garnið sem saumað er með er í ljósum litum, brúnleitum, grænleitum og er allgróft silkigarn.
Handlína þessi er frá Heydölum í Breiðdal, úr eigu Ingibjargar Högnadóttur konu Ara Brynjólfssonar þingmanns d:1912.
*Líklegra er að stafirnir séu CVDA og eigi að lesast í þessari röð, þ.e. C... V...dóttir á. Áletrun er jafnframt í reit fyrir miðri handlínunni. Þar stendur: IESU GESTUR ER EG I DAG, þ.e. Jesú gestur er ég í dag. (Freyja Hlíðkvist Ó. Sesseljudóttir, maí 2022).
Aðrar upplýsingar
Ártal
1800
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1979-34
Stærð
86.5 x 83.5 cm
Lengd: 86.5 Breidd: 83.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Handlína



