Handrit, óþ. hlutv.

1906
Nýárskvæði eptir mag. Benedikt Gröndal til Guðmundar Magnússonar læknis og frú Katrínar, skrautritað af skáldinu, prýtt blómum og fuglamyndum m.m. Tvíblöðungur, st. 38,5 x 30,5 cm. Lagður í kápu, sem er eins og venjuleg bókarkápa,með rauðu ljerepti á kili og hornum og brúnum pappír á spjöldunum. St. 40,2 x 31,3 cm. Er frá 1906 og var Benedikt Gröndal þá nær áttræður. Á fremri síðuna er neðst mynd af fígúru úr grískri goðafræði og neðst á myndina skrifað: YriEIA. Fyrir ofan myndina stendur: Gott ár! Frú Katrín og Guðmundur Magnússon Á síðari blaðsíðunni er kveðjan sjálf: 1906 Allt er gamalt og allt er nýtt aptur grænkar það nú er hvítt sú eilífa sólin er alltaf ný þó opt hana byrgi koldimmt ský. Án efa er hið æðsta hrós af alþjóð manna hér, að bjart af ykkur leggi ljós um landið hvar sem er; því margir héldu heima frá að hjálp þeir ykkar mættu fá, og sjaldan brást þeim bót að ná, er bölið lífið sker. Ef lýsa skyldi læknis hönd þar leyndur kraptur býr, þá yrði ritin ærið vönd, og aflið burtu flýr. Og kvennleg höndin kraptinn lér, og kann að styðja þar og hér, og fegra það sem fölnað er - sú líkn er ljúf og hýr. Þið elskið ykkar ættarjörð og ei þann fyllið hóp sem sveinar eins og sauða hjörð og sinnir dönskum glóp. Það gull sem ykkur gefið var þið geymduð vel um aldirnar, þó á það félli eitthvert skar við útlent smánar hróp. Og nú er fögur nýjárs sól á nýja svífur braut, og dreifir ljósi um dal og hól, og dimma jarðar laut: hún geislum helli ykkur á svo ætíð heill þið megið fá, og ykkur brosi allt sem má og opni sælu skaut. Og loksins er óskin mín einlæg og hrein að aldregi hreppið þið sorgir og mein og þreyti ykkur aldrei neitt þróttleysi hér - og þar með sú heilla-ósk fullkomnuð er. Ben. Gr.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1906
Safnnúmer
Safnnúmer A: 9134 Safnnúmer B: 1925-120
Stærð
38.5 x 30.5 x 0 cm Lengd: 38.5 Breidd: 30.5 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti