Handrit, óþ. hlutv.
1906

In preservation at
National Museum of Iceland
Nýárskvæði eptir mag. Benedikt Gröndal til Guðmundar Magnússonar læknis og frú Katrínar, skrautritað af skáldinu, prýtt blómum og fuglamyndum m.m. Tvíblöðungur, st. 38,5 x 30,5 cm. Lagður í kápu, sem er eins og venjuleg bókarkápa,með rauðu ljerepti á kili og hornum og brúnum pappír á spjöldunum. St. 40,2 x 31,3 cm. Er frá 1906 og var Benedikt Gröndal þá nær áttræður.
Á fremri síðuna er neðst mynd af fígúru úr grískri goðafræði og neðst á myndina skrifað: YriEIA. Fyrir ofan myndina stendur:
Gott ár!
Frú Katrín
og
Guðmundur
Magnússon
Á síðari blaðsíðunni er kveðjan sjálf:
1906
Allt er gamalt og allt er nýtt
aptur grænkar það nú er hvítt
sú eilífa sólin er alltaf ný
þó opt hana byrgi koldimmt ský.
Án efa er hið æðsta hrós
af alþjóð manna hér,
að bjart af ykkur leggi ljós
um landið hvar sem er;
því margir héldu heima frá
að hjálp þeir ykkar mættu fá,
og sjaldan brást þeim bót að ná,
er bölið lífið sker.
Ef lýsa skyldi læknis hönd
þar leyndur kraptur býr,
þá yrði ritin ærið vönd,
og aflið burtu flýr.
Og kvennleg höndin kraptinn lér,
og kann að styðja þar og hér,
og fegra það sem fölnað er -
sú líkn er ljúf og hýr.
Þið elskið ykkar ættarjörð
og ei þann fyllið hóp
sem sveinar eins og sauða hjörð
og sinnir dönskum glóp.
Það gull sem ykkur gefið var
þið geymduð vel um aldirnar,
þó á það félli eitthvert skar
við útlent smánar hróp.
Og nú er fögur nýjárs sól
á nýja svífur braut,
og dreifir ljósi um dal og hól,
og dimma jarðar laut:
hún geislum helli ykkur á
svo ætíð heill þið megið fá,
og ykkur brosi allt sem má
og opni sælu skaut.
Og loksins er óskin mín einlæg og hrein
að aldregi hreppið þið sorgir og mein
og þreyti ykkur aldrei neitt þróttleysi hér -
og þar með sú heilla-ósk fullkomnuð er.
Ben. Gr.
Main information
Dating
1906
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 9134
"Museumnumber b": 1925-120
Dimensions
38.5 x 30.5 x 0 cm
Lengd: 38.5 Breidd: 30.5 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Handrit, óþ. hlutv.