Fjöl, útskorin

1100 - 1150
Úr aðfangabók: Fjórar útskornar fjalir úr gamla bænum í Flatatungu.  Sá bær var rifinn árið 1952.  Þetta eru fjögur fjalabrot með útskornum myndum af helgum mönnum og skrautverki í Hringaríkisstíl.  Á fjölunum eru upprunaleg naglagöt, sem sýna að þær hafa í upphafi verið notaðar sem myndgrunnur en ekki þiljur.  Færð hafa verið rök fyrir því að þetta séu leifar af stórri útskorinni mynd af Kristi og postulunum sem prýtt hafi Hóladómkirkju í tíð Jóns helga Ögmundssonar í byrjun 12. aldar.  Þessar helgimyndir eru taldar elstar sinnar tegunar á Norðurlöndum.   Sjá um hluti þessa í Kuml og heugfé og "Carved Panels from Flatatunga, Iceland, by Kristján Eldjárn, Reykjavík í ,, Acta Arvhaeologica", vol XXIV, 1953, bls. 81-101.  Ennfremur bók Harðar Ágústssonar, Dómsdagur og helgir menn á Hólum, Reykjavík 1989. Kirkja og kirkjuskrúð (texti Þóru Kristjánsdóttur): Viðarþiljur kenndar við Flatatungu í Skagafirði.  Þær voru síðast notaðar þar í gamla torfbænum.   Varðveisla þeirra og geymd sýnir hversu dýrmætur allur byggingaviður hefur löngum verið á Íslandi, hver fjöl notuð til hins ýtrasta, góður forn viður fluttur milli bæja og jafnvel héraða og notaður aftur og aftur.  Þessar fjórar fjalir sem varðveist hafa eru vafalaust úr þili sem á hefur verið skorin mikil helgimynd, með mannamyndum og skrautverki, og hefur síðan allt þilið væntanlega verið málað.  Á einni þeirra er helgur maður með geislabaug, trúlega Kristur.  Skrautverkið sýnir hreinræktaðan Hringaríkisstíl sem var ríkjandi á Norðurlöndum og Englandi á 11. öld.  Stíllinn er vel þekktur á rúnasteinum, en lítið hefur varðveist af slíkum skurði í tré.  Hörður Ágústsson hefur fært rök fyrir því að hér sé um að ræða leifar af stórri helgimynd af Kristi og postulunum sem prýtt hafi kór fyrstu dómkirkjunnar á Hólum, sem Jón biskup Ögmundsson lét reisa upp úr 1106.   Væri hún þá elsta helgimynd sinnar tegundar sem varðveist hefur á Norðurlöndum.   (sbl, jan. 2011) „ICELANDIC ECCLESIASTICAL ART IN THE MIDDLE AGES.“   Church and Art(Þóra Kristjándóttir): Carved wooden boards, last used in an old turf farmhouse at Flatatunga, demolished 1952.  Four fragments of boards have survived, with carved images of holy men and ornament in the Ringerike style.  The boards have the original nail-holes, which demonstrates that they were originally part of a picture, and not a wall.   The hypotheses has been argued that these are remnants of a large carved picture of Christ and the apostles in the cahedral of Hólar in the time of St. Jón Ögmundsson, in the early 12th century.   These devotional images are believed to be the oldest of their kind in the Nordic world. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 24.1.2011) Stærðir skráðar í Sarp 2: "H. 43/75/23; Br. 14-15,3/21-23/17-18 cm"

Aðrar upplýsingar

Ártal
1100 - 1150
Safnnúmer
Safnnúmer A: 15296 Safnnúmer B: 1953-27
Stærð
75 x 23 cm Lengd: 75 Breidd: 23 cm
Staður
Staður: Flatatunga, 561-Varmahlíð, Skagafjörður
Sýningarstaður
Grunnsýning 14
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Fjöl, útskorin
Heimildir
Á efsta degi. Bysönsk dómsdagsmynd frá Hólum. Ritstjórar Ágústa Kristófersdóttir og Karen Þóra Sigurkarlsdóttir. Reykjavík, 2007. Guðrún Sveinsdóttir. „Gamlir dagar í Bjarnastaðahlíð.“ Skagfirðingabók. Ársrit Sögufélags Skagfirðinga IV. Reykjavík 1969, bls. 191. Hannes Pétursson. „Brot úr sögu Flatatungufjala.“ Árbók hins íslenzka fornleifafélags 1977. Reykjavík 1978, bls. 117-123. Hörður Ágústsson. Dómsdagur og helgir menn á Hólum. Reykjavík 1989. Kristján Eldjárn. „Carved panels from Flatatunga, Iceland.“ Acta Archaeologica, XXIV. Köbenhavn 1954, bls. 81-101. Kristján Eldjárn. „Svipir í Flatatungubæ.“ Stakir steinar. Reykjavík 1959. Kristján Eldjárn. „Helgir menn frá Flatatungu.“ Hundrað ár í Þjóðminjasafni. Reykjavík 1962, 91. þáttur. Kristján Eldjárn. Kuml og haugfé. Reykjavík 2000, bls. 451-459. Þóra Kristjánsdóttir.   „Íslensk kirkjulist.“  Kirkja og kirkjuskrúð. (Ritstjórar Lilja Árnadóttir, Ketil Kiran).   Reykjavík, 1997 Þóra Kristjándóttir.  „ICELANDIC ECCLESIASTICAL ART IN THE MIDDLE AGES.“   Church and Art.   (Ritstjórar Lilja Árnadóttir, Ketil Kiran).  Reykjavík, 1997.

Upprunastaður

65°25'2.2"N 19°9'28.4"W