Líkneski, úr kirkju

Katrínar-líkneski úr sömu altarisbrík og nr 10884 a, útskorið úr eik, mjög hátt upphleypt: hefur efnið verið límt saman úr 2 þykkum plankabútum. Er ágætlega skorið og hefur verið gylt og skrautlitað, en það skraut er nú allt farið þó sjer gyllingu í hárinu. Hendur eru brotnr af og kórónan að mestu einnig. Kyrtillinn er dragsíður og kápa nær á hnje niður er hún með miklum skrautborðum á. Festi er á hálsi og brjóstmynd af öldruðum manni með kampa og sítt hökuskegg sem hann heldur vinstri hendi um, en mikið vantar nú framan-af andlitinu. Á höfðinu virðast vera leifar af kórónu, og myndin því eiga að sýna Maximinus eða Maxentins keisara, - sje þetta þá Katrín: þær einkunnir, sem kunna að hafa verið (aðrar) með þessari mynd, vantar nú . Líkneskið er um 53 cm. að hæð. Sljett að aptan. (CXXXVI a III) Sjá mynd í Islands Kirke, I., b.,bls. 245.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 10884-c Safnnúmer B: 1930-292
Stærð
58 x 0 x 0 cm Lengd: 58 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Skálholt, 801-Selfossi, Bláskógabyggð, Biskupstungur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

64°7'38.6"N 20°31'27.2"W