Líkneski, úr kirkju

In preservation at
National Museum of Iceland
Katrínar-líkneski
úr sömu altarisbrík og nr 10884 a, útskorið úr eik, mjög hátt upphleypt:
hefur efnið verið límt saman úr 2 þykkum plankabútum. Er ágætlega skorið
og hefur verið gylt og skrautlitað, en það skraut er nú allt farið þó sjer
gyllingu í hárinu. Hendur eru brotnr af og kórónan að mestu einnig. Kyrtillinn
er dragsíður og kápa nær á hnje niður er hún með miklum skrautborðum á.
Festi er á hálsi og brjóstmynd af öldruðum manni með kampa og sítt hökuskegg
sem hann heldur vinstri hendi um, en mikið vantar nú framan-af andlitinu.
Á höfðinu virðast vera leifar af kórónu, og myndin því eiga að sýna Maximinus
eða Maxentins keisara, - sje þetta þá Katrín: þær einkunnir, sem kunna
að hafa verið (aðrar) með þessari mynd, vantar nú . Líkneskið er um 53
cm. að hæð. Sljett að aptan. (CXXXVI a III) Sjá mynd í Islands Kirke, I.,
b.,bls. 245.
Main information
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 10884-c
"Museumnumber b": 1930-292
Dimensions
58 x 0 x 0 cm
Lengd: 58 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Place
Staður: Skálholt, 801-Selfossi, Bláskógabyggð, Biskupstungur, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Líkneski, úr kirkju
Place of origin
64°7'38.6"N 20°31'27.2"W
