Hringla, af reiðtygjum

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Hringla úr járni, lík nr. 1106, 2044 o.fl., en stærri, l. 20,2 cm., en neðsti hluti teinsins er sívalur og grennri, en efri hlutinn, fyrir neðan kúluna, og er 6,4 cm. að l.: hefur hann sennilega allur gengið niður í gegnum hyfrið. Annars er teinninn ferstrendur og 1 cm. að þverm., og 7,7 cm. að l. upp að kúlu. Kragana, og hettuna að miklu leyti, vantar, en í járnhólk, sem er 4,9 cm. að þverm. og 3 að br., hanga 6 spaðar eða lengjur með slegnu blaðverki á til skrauts, skemdar allar meira og minna, 2 nær allar af: hin heillegasta 10,4 cm. að l. og hefur þó verið lengri. Er þetta alt mjög ryðjetið. Hringla þessi fannst úti á víðavangi þar eystra (S.V.), þ.e. á Fljótsdalshjeraði. - Sbr. einkum það er áður er sagt við nr. 1106 um þessi áhöld.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Þorvarður Kjerulf
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 2938
Safnnúmer B: 1887-51
Stærð
20.2 x 0 cm
Lengd: 20.2 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Múlaþing, Múlaþing
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hringla, af reiðtygjum