Glóðarker, til matargerðar
1800 - 1900

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Glóðarker / fýrfat úr rauðum eir,
sporöskjulaga með gagnskornu munstri í hliðum. Það hefur staðið á fjórum
fótum en nú er einn fóturinn farinn af. Það er viðgert með koparplötum
í botninn, bæði að neðanverðu og ofanverðu. Annað mjög áþekkt glóðarker
er til í safninu, nr. Þjms. 5581.
„Glóðarker, eða fýrföt,
voru sums staðar til á bæjum, flest innflutt. Í þau var tekin glóð úr hlóðunum
með eldtöng. Glóðarker voru notuð til að ylja upp í köldum herbergjum,
halda kaffikönnunni volgri í baðstofu, eða öðrum smærri matarílátum og
svo notuðu reykingamenn glóðarker til að halda lifandi í pípum sínum. Í
sama skyni voru notaðir pottar þar sem menn bjuggu ekki svo vel að eiga
glóðarker.“
Gefandi er Hans R. Berndsen. Hann
kom með báða gripina nr. Þjms. 2008-55 á svonefndan greiningardag í Þjóðminjasafninu
þann 9. nóvember 2008 og vildi afhenda þá safninu til varðveislu. Glóðarkerið
er úr eigu afa hans, Fritz Hendrik Berndsen (f. 1837, d. 1927), kaupmanns
á Skagaströnd, sem fluttist til Íslands frá Kaupmannahöfn í kringum 1855.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1800 - 1900
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2008-55-1
Stærð
15.8 x 11.7 x 8 cm
Lengd: 15.8 Breidd: 11.7 Hæð: 8 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Skagaströnd, Sveitarfélagið Skagaströnd
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Glóðarker, til matargerðar
Heimildir
Hallgerður Gísladóttir, Eldamennska
í íslensku torfbæjunum. Smárit Byggðasafns Skagfirðinga, V. 2. útg.
2007, bls. 26.
