Tóbaksbaukur

Tóbaksbaukur, tré. Tóbaksbaukur, eins í laginu og n.nr. á undan, all ávalur, skorinn í dökkan við að mestu leyti og basaðu, l. um 13,9 cm, br 6,5 cm o gþ. 3,7 cm. Stúturinn úr rauðum viði, eilítið ljósari en bolur, 2 cm á l., felldur í enda, kringlóttur í þverskurði og að framan hnúðlaga, en gjörð úr silfri umhverfis miðjan hnúð, vídd við opið á stút 0,8 cm, tappinn er úr rauðum viði, lítið eitt ljósari á lit en stútur, kringlóttur í þverskurði, 3,1 cm á l., með aflöngum hnúð og í hann gerð íhvolf mjódd við miðju og umhverfis, á brúninni á belgnum, 1,3 cm frá samskeytunum hjá stút, er lítið auga úr kopar, gert fyrir tappafesti, í enda að aftan er skrúfuð löpp, smíðuð úr rauðum viði, eins á lit og tappinn í stút, l. 2,6 cm og með sams konar haus og er á tappanum. Allur er baukurinn bæsaður utan. Lagið á bol reglulegt að kalla og yfirborð þar slétt vel. Spanskgrænuhúð á auganu fyrir festi og spanskgrænubletti má sjá á gjörðinni um stút. Að sögn var tóbaksbaukur þessi í eigu Gísla Konráðssonar, fræðimanns (1787-1877). Sbr. Ísl. Æviskrár, II, bls. 66-67.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: Á-367
Stærð
13.9 x 6.5 x 3.7 cm Lengd: 13.9 Breidd: 6.5 Hæð: 3.7 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ásbúðarsafn (Á)
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóbaksbaukur