Spilastokkur

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Spil, rammíslensk spil.
Rammíslensk spil, eitt eintak. Spil þessi teiknaði Lovísa Matthíasdóttir, og heitir kóngur þeirra bóndi, drottning húsfreyja og gosi vinnumaður. Eru 54 spil í pakkanum þar af eitt með töflu fyrir „Kontrakt“ bridge, l. við þau 9 sm, br. 5,9 sm. Mynd bæjar í torfbæjarstíl, tvöföld, er við bakhliðina, brún og hvít. Í kassa úr hvítum pappa, sem á er prentað með brúnum lit, l. kassans 9,7 sm, br. 6,3 sm, og þ. 2 sm. Sbr. „Saga spilanna“, eftir Guðbrand Magnússon.
Aðrar upplýsingar
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: Á-3517
Stærð
9.7 x 6.3 x 2 cm
Lengd: 9.7 Breidd: 6.3 Hæð: 2 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ásbúðarsafn (Á)
Efnisorð / Heiti