Skatthol
1820 - 1825

Varðveitt hjá
Byggðasafnið í Görðum á Akranesi
Skatthol úr eik.
Hægt er að taka skattholið í sundur í þrjá hluta, efsti hluti er með þrjár hurðar, síðan kemur halllok sem leggja má niður og neðst eru fjórðar skúffur og hægt er að læsa öllum hirslum. Innan við halllokið eru nokkrar mismunandi skúffur. Þegar skattholið var flutt á milli bæja var það tekið í þrennt og flutt á hestum. Um árið 1980 var skattholið gert upp.
Séra Hannes Stephensen keypti skattholið þegar hann var við nám í guðfræði í Hafnarháskóla í Kaupmannahöfn sem hann lauk árið 1824. Varð prestur í Görðum á Akranesi 1825 til æviloka. Bjó fyrst að Innra-Hólmi, síðar Ytra-Hólmi. Prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi frá 1832 til æviloka. Alþingismaður Borgfirðinga 1845–1856. Eftir lát hans gekk skattholið á milli ættingja hans.
Aðrar upplýsingar
Eigandi: Ólafur Stephensen
Eigandi: Stefán Stefánsson Stephensen
Eigandi: Hannes Stefánsson Stephensen
Eigandi: Þórir Ólafsson Stephensen
Gefandi: Ólafur Stephensen
Eigandi: Stefán Stefánsson Stephensen
Eigandi: Hannes Stefánsson Stephensen
Eigandi: Þórir Ólafsson Stephensen
Gefandi: Ólafur Stephensen
Ártal
Aldur: 1820 - 1825
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2026-310-1
Stærð
175,5 x 122 x 53,5 cm
Staður
Upprunalegur staður: Staður: Ytri Hólmur, Ytri-Hólmur, 301-Akranesi, dreifbýli, Hvalfjarðarsveit, Ísland
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skatthol
Upprunastaður
64°18'17.3"N 22°1'43.6"W





