Hálsmen

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1319. Hálsmen. Hinn 27. okt. 1903 lét hinn danski konungur Kristján IX. það boð út ganga með tilskipan, að Íslendingar skyldu breyta "Íslandsmerkinu". Skyldi þá merkið verða "Hvítur fálki á bláum feldi". Þá hafði flatti þorskurinn verið merki Íslands síðan árið 1593. Það merki hafði jafnan verið hneykslunarhella margra Íslendinga á áratugum sjálfstæðisbaráttunnar vegna þess, að orðið "þorskur" hefur a.m.k. tvær merkingar í íslenzku máli. Margir Íslendingar glöddust verulega við þessa tilskipan konungs árið 1903 og íslenzkar konur létu íslenzka gullsmiði búa sér til slifsisnælur til minningar um þessa breytingu á "Íslandsmerkinu". Þetta hálsmen er dæmi um þá gleði, sem ríkti með íslenzkum konum eftir breytinguna. Hálsmen þetta átti frú Soffía Andersdóttir skipstjóra Asmundsen í Stakkagerði og frú Ásdísar Jónsdóttur húsfreyju þar. Frú Soffía var kona Gísla kaupmanns Stefánssonar í Hlíðarhúsi (nr. 5 B) við Miðstræti. Frú Soffía Elísabet Andersdóttir var fædd árið 1847. Hún lézt 1936, 89 ára gömul. Frú Soffía eignaðist þetta hálsmen fljótlega eftir að konungur gaf út tilskipanina um nýja Íslandsmerkið. Eftir daga frú Soffíu eignaðist dóttir hennar, frú Ásdís Gísladóttir Johnsen (kona Gísla J. Johnsen) hálsmenið. Dóttir þeirra hjóna, frú Soffía Gísladóttir Johnsen, sem gift var Ísleifi Árnasyni, prófessor, erfði hálsmenið eftir móður sína og gaf það Byggðarsafninu að 40 árum liðnum frá andláti móðurinnar. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
1319
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hálsmen
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.