Nafnskilti, + hlutv.

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1194. Friðþjófur. Þetta nafnskilti er af hinu nafnkunna áraskipi Friðriks Svipmundssonar á Löndum (Stóru-Löndum, nr. 11) við Landagötu. Það á sína sögu. Það er lagt gulli. Þegar Engilbert Gíslason, málarameistari hér í bæ, stundaði málaranám í Kaupmannahöfn um og eftir síðustu aldamót, barst honum beiðni frá Friðriki Svipmundssyni, formanni og útgerðarmanni, að hann léti leggja stafi bátsnafnsins gulli. Engilbert Gíslason kom heim frá námi í Kaupmannahöfn árið 1903. Hafði hann þá hið gulli lagða skilti með sér til Eyja. Árið 1906 festi Friðrik Svipmundsson ásamt fimm öðrum Eyjamönnum kaup á vélbáti í Danmörku. Sá bátur var fyrst gerður hér út vertíðina 1907. Hann hlaut nafnið Friðþjófur, og á hann var þá sett þetta skilti. Fleiri vélbáta átti Friðrik Svipmundsson síðar með þessu nafni. Frú Elín Þorsteinsdóttir, kona Friðriks Svipmundssonar, gaf Byggðarsafninu skiltið eftir fráfall manns síns. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
1194
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.