Þvottakanna

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1175. Þvottakanna og -fat. Þvottastell voru þessir samstæðu hlutir venjulega kallaðir á danska vísu., enda voru það Danir, sem fyrstir fluttu þessa hluti til landsins. Meðan Eyjafólk var að notast við rigningarvatn einvörðungu í heimilum sínum og jafnframt útisalerni eða kamra, voru þessi þvottatæki algeng a.m.k. á hinum efnaðri heimilum. Auðvitað voru þá heldur engar fastar handlaugar til á heimilunum. Vatnið var borið fram í könnunni og fatið var þvottaskálin, þegar andlit, hendur og stundum líkaminn allur var þvegið. Eftir að innisalerni („klósett”) urðu almenn á heimilunum og fastar handlaugar með rennandi neyzluvatni frá fastalandinu, hurfu þessi þvottaáhöld gjörsamlega. Þessi þvottatæki bárust Byggðarsafninu úr dánarbúi hjónanna í Hlíð (nr. 4) við Skólaveg, Jóns útgerðarmanns Jónssonar, rithöfundar, og frú Þórunnar Snorradóttur. Dóttir þeirra, frú Ásta Jónsdóttir, Sólhlíð 6, gaf Byggðarsafninu þessa hluti. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
1175
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Þvottakanna
Efnisorð:
Þvottafat
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.