Þvottakanna

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"1175. Þvottakanna og -fat. Þvottastell voru þessir samstæðu hlutir venjulega kallaðir á danska vísu., enda voru það Danir, sem fyrstir fluttu þessa hluti til landsins. Meðan Eyjafólk var að notast við rigningarvatn einvörðungu í heimilum sínum og jafnframt útisalerni eða kamra, voru þessi þvottatæki algeng a.m.k. á hinum efnaðri heimilum. Auðvitað voru þá heldur engar fastar handlaugar til á heimilunum. Vatnið var borið fram í könnunni og fatið var þvottaskálin, þegar andlit, hendur og stundum líkaminn allur var þvegið. Eftir að innisalerni („klósett”) urðu almenn á heimilunum og fastar handlaugar með rennandi neyzluvatni frá fastalandinu, hurfu þessi þvottaáhöld gjörsamlega. Þessi þvottatæki bárust Byggðarsafninu úr dánarbúi hjónanna í Hlíð (nr. 4) við Skólaveg, Jóns útgerðarmanns Jónssonar, rithöfundar, og frú Þórunnar Snorradóttur. Dóttir þeirra, frú Ásta Jónsdóttir, Sólhlíð 6, gaf Byggðarsafninu þessa hluti. "
Main information
Recorder: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Owner: Jón Jónsson
Donor: Ásta Jónsdóttir
Owner: Þórunn Snorradóttir
Owner: Jón Jónsson
Donor: Ásta Jónsdóttir
Owner: Þórunn Snorradóttir
Object-related numbers
1175
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.