Taurulla

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1166. Taurulla. Þessi taurullu, sem er af gamalli, danskri gerð, smíðaði Jón bóndi og líkkistusmiður Vigfússon í Túni. Fyrirmyndin að smíðinni var taurulla sú, sem lengi var notuð hér í Danska-Garði hjá einokunarkaupmanninum. Sú rulla var flutt inn frá Danmörku um miðbik 19. aldar. Kassinn var fylltur grjóti. Undir kassanum eru kefli og var þvotturinn undinn um þau, þegar rullað var. Stæltur karlmaður var venjulega hjálparhella kvenna við þessar athafnir. Svo erfitt þótti verkið og átakasamt. Taurullu þessa smíðaði Jón bóndi um 1870. Hún var notuð í Túni, þar til hún var gefin Byggðarsafninu um 1960. "

Aðrar upplýsingar

Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Eigandi:
Jón Vigfússon
Framleiðandi:
Jón Vigfússon
Safnnúmer
1166
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Taurulla
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.