Upphlutsnál

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"988. Upphlutsnál. Nál þessa smíðaði Ólafur bóndi Guðmundsson, sem bjó á Kirkjubæ á fyrri hluta síðustu aldar. Síðari kona hans var frú Guðrún yngri Pálsdóttir prests og skálds Jónssonar að Kirkjubæ. Afkomandi Ólafs bónda Guðmundssonar og fyrri konu hans, frú Helgu Ólafsdóttur, gaf Byggðarsafninu nálina. Hún er frú Ingibjörg Guðmundsdóttir kennari, Rauðarárstíg 3, Rvík. Ólafur bóndi Guðmundsson var vopnasmiður Herfylkingar Vestmannaeyja á árunum 1857-1860. (Ó. G. lézt 1869). "
Aðrar upplýsingar
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Gefandi: Ingibjörg Guðmundsdóttir
Framleiðandi: Ólafur Guðmundsson
Gefandi: Ingibjörg Guðmundsdóttir
Framleiðandi: Ólafur Guðmundsson
Safnnúmer
988
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Upphlutsnál
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.