Stofuhurð

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"895. Stofuhurð. Stofuhurð þessi var fyrst notuð í íbúðarhúsi því á Ofanleiti, sem séra Brynjólfur Jónsson sóknarprestur byggði þar árið 1863. Þá hafði séra Brynjólfur verið þar prestur í 3 ár. Þetta íbúðarhús að Ofanleiti var rifið um eða eftir síðustu aldamót. Séra Oddgeir Þórðarson Guðmundsen, sóknarprestur að Ofanleiti frá 1889-1924, lét byggja nýtt prestssetur að Ofanleiti um eða eftir síðustu aldamót. Þá var þessi hurð notuð þar. Þegar svo steinhúsið að Ofanleiti var byggt árið 1927,í tíð prestshjónanna séra Sigurjóns Þ. Árnasonar og frú Þórunnar Kolbeins, var þessi hurð ekki notuð lengur. Hreppti hana þá húsameistarinn Kristján Jónsson á Heiðarbrún (nr. 59) við Vestmannabraut. Síðar eignaðist Magnús Eyjólfsson á Grundarbrekku (nr. 11) við Skólaveg hurðina. Þar var hún notuð í kjallara hússins á árunum 1946-1966. Gestir Byggðarsafnsins undrast, hvernig hægt var að nota svo lága stofuhurð, sem þessi er. Athugandi er það, að þá voru þröskuldar hafðir 30-40 sm háir.
Hjónin á Grundarbrekku, frú Guðrún Magnúsdóttir og Jónas Guðmundsson, gáfu Byggðarsafninu hurðina. "
Aðrar upplýsingar
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Eigandi: Oddgeir Þórðarson Guðmundssen
Eigandi: Kristján Jónsson
Eigandi: Brynjólfur Jónsson
Gefandi: Guðrún Magnúsdóttir
Gefandi: Jónas Guðmundsson
Eigandi: Oddgeir Þórðarson Guðmundssen
Eigandi: Kristján Jónsson
Eigandi: Brynjólfur Jónsson
Gefandi: Guðrún Magnúsdóttir
Gefandi: Jónas Guðmundsson
Safnnúmer
895
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Stofuhurð
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.