Stofuhurð

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "895. Stofuhurð. Stofuhurð þessi var fyrst notuð í íbúðarhúsi því á Ofanleiti, sem séra Brynjólfur Jónsson sóknarprestur byggði þar árið 1863. Þá hafði séra Brynjólfur verið þar prestur í 3 ár. Þetta íbúðarhús að Ofanleiti var rifið um eða eftir síðustu aldamót. Séra Oddgeir Þórðarson Guðmundsen, sóknarprestur að Ofanleiti frá 1889-1924, lét byggja nýtt prestssetur að Ofanleiti um eða eftir síðustu aldamót. Þá var þessi hurð notuð þar. Þegar svo steinhúsið að Ofanleiti var byggt árið 1927,í tíð prestshjónanna séra Sigurjóns Þ. Árnasonar og frú Þórunnar Kolbeins, var þessi hurð ekki notuð lengur. Hreppti hana þá húsameistarinn Kristján Jónsson á Heiðarbrún (nr. 59) við Vestmannabraut. Síðar eignaðist Magnús Eyjólfsson á Grundarbrekku (nr. 11) við Skólaveg hurðina. Þar var hún notuð í kjallara hússins á árunum 1946-1966. Gestir Byggðarsafnsins undrast, hvernig hægt var að nota svo lága stofuhurð, sem þessi er. Athugandi er það, að þá voru þröskuldar hafðir 30-40 sm háir. Hjónin á Grundarbrekku, frú Guðrún Magnúsdóttir og Jónas Guðmundsson, gáfu Byggðarsafninu hurðina. "

Main information

Object-related numbers
895
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Stofuhurð
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.