Kaffiketill

1865 - 1875
Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "735. Eirketill. Þennan kaffiketil átti Sigurður Ólafsson, formaður og útgerðarmaður í Bólstað (nr. 18) við Heimagötu. Hann notaði ketilinn um 30 ára bil, þegar hann var formaður á áraskipinu Fortúnu, sem hann gerði út með öðrum, fyrst frá Eyjafjallasandi, síðan Landeyjasandi og síðast héðan frá Eyjum og þá eftir aldamótin, áður en vélbátaútvegur inn hófst. Ketillinn var fyrst notaður í hákarla,,túrum”, en til hákarlaveiða fór Sigurður formaður iðulega á yngri formannsárum. Frú Auðbjörg Jónsdóttir, kona Sigurðar formanns, gaf Byggðarsafninu ketilinn. Hann mun vera um 100 ára gamall. Hann er íslenzk smíði."

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1865 - 1875
Safnnúmer
735
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kaffiketill
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.