Kilpur, af fötu

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"688. Mjólkurfötukilpur. Sú saga fylgir þessum hlut, að kilpurinn sé af mjólkurfötu, sem Sigurður Eiríksson Breiðfjörð skáld hafi smíðað, þegar hann dvaldist hér í Eyjum við beykisiðn við einokunarverzlunina 1826-1827. Kilpur þessi var lengi geymdur í Ottahúsi, sem áður hét Breiðfjörðshús, kennt við skáldið. Frá Ottahúsi barst kilpurinn að Gjábakka og var í eigu hjónanna Ingimundar Jónssonar, hreppstjóra, og frú Margrétar Jónsdóttur. Frá dóttur þeirra hjóna, frú Sesselju, konu Jóns kaupmanns Einarssonar á Gjábakka, barst Byggðarsafninu kilpurinn að gjöf."
Aðrar upplýsingar
Framleiðandi: Sigurður Breiðfjörð
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Eigandi: Margrét Jónsdóttir
Eigandi: Ingimundur Jónsson
Gefandi: Sesselja Ingimundardóttir
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Eigandi: Margrét Jónsdóttir
Eigandi: Ingimundur Jónsson
Gefandi: Sesselja Ingimundardóttir
Safnnúmer
688
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kilpur, af fötu
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.