Strokkur

1858
Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "706. Strokkur. Þennan litla strokk eignuðust hjónin á Gjábakka, frú Margrét Jónsdóttir og lngimundur hreppstjóri Jónsson, þegar þau gengu í hjónaband, en það var árið 1858. Þau notuðu síðan strokkinn í búskap sínum meira en hálfa öld. Barnabarn þeirra, Jón Stefánsson frá Mandal (nr. 18) við Njarðarstíg, gaf Byggðarsafninu strokkinn til minningar um ömmu sína og afa. Í ,,Íslenzkum þjóðháttum” er tekið fram, að strokkunin með þessum íslenzku bullustrokkum þótti ganga vel, ef komizt var af með 600-700 bulluslög, áður en rjóminn skildist í strokknum. Stundum urðu slögin 1000-1200 stendur þar skrifað."

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1858
Safnnúmer
706
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Strokkur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.