Dragkista

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"881. Dragkista (kommóða). Þessa dragkistu áttu prestshjónin að Ofanleiti, séra Jón Jónsson Austmann og mad. Þórdís Magnúsdóttir. Þau voru búandi að Ofanleiti 1827-1858. Kommóða þessi kvað vera dönsk að uppruna, og eignuðust prestshjónin hana árið 1817, er þau fengu prestakallið að Þykkvabæjarklaustri og settust að á Mýrum. Eftir fráfall séra Jóns J. Austmanns árið 1858 eignaðist Magnús J. Austmann, hóndi, stúdent og alþingismaður að Nýjabæ kommóðuna, en hann var elzta barn þeirra hjóna. Hann lézt árið 1859. Frú Kristín Einarsdóttir, ekkja hans, átti síðan húsgagn þetta alla sína búskapartíð í Nýjabæ eða til dauðadags árið 1899. Við fráfall frú Kristínar Einarsdóttur eignaðist: Þórarinn bóndi Árnason á Oddstöðum kommóðuna og síðan Oddgeir bifreiðarstjóri sonur hans. Oddgeir Þórarinsson gaf hana Byggðarsafninu árið 1958 eða á 100 ára ártíð séra Jóns Austmanns, hins gagnmerka sóknarprests. "
Aðrar upplýsingar
Eigandi: Jón Jónsson Austmann
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Eigandi: Þórarinn Árnason
Kristín Einarsdóttir
Eigandi: Magnús Jónsson Austmann
Eigandi: Þórdís Magnúsdóttir
Eigandi: Oddgeir Þórarinsson
Gefandi: Oddgeir Þórarinsson
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Eigandi: Þórarinn Árnason
Kristín Einarsdóttir
Eigandi: Magnús Jónsson Austmann
Eigandi: Þórdís Magnúsdóttir
Eigandi: Oddgeir Þórarinsson
Gefandi: Oddgeir Þórarinsson
Safnnúmer
881
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Dragkista
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.