Rokkur

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "623. Rokkur. Þennan sérlega rokk smíðaði á fyrstu árum 20. aldarinnar Jón rennismiður Þórðarson, kallaður Hlíðarskáld. (F. 1862, d. 1926). Rokkurinn er með „koparstelli”. Rokkinn átti upprunalega frú Sesselja Ingimundardóttir, kona Jóns kaupmanns Einarssonar á Gjábakka (nr. 8 við Bakkastíg). Sakir vináttu gaf hún rokkinn frú Helgu Skúladóttur, prestfrú á Kálfafellsstað í Suðursveit, sem var kona séra Péturs Jónssonar sóknarprests þar (d. 1926). Frú Helga Skúladóttir var frá Sigríðarstöðum í Ljósavatnsskarði. Hún lézt árið 1953 og þá 87 ára gömul. Við lát prestsfrúarinnar eignaðist frú Jarþrúður P. Johnsen, dóttir prestshjónanna, rokkinn. Eins og Eyjabúum er kunnugt, var hún kona Sigfúsar M. Johnsen, fyrrverandi bæjarfógeta í Eyjum. Þau hjón gáfu Byggðarsafninu rokkinn. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
623
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Rokkur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.