Prjónastokkur

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"617. Prjónastokkur. Þennan prjónastokk átti Björg Jóhannsdóttir frá Krosshjáleigu í Landeyjum, en hún var lengi vinnukona hjá frú Jónínu Jónsdóttur í Gerði og andaðist hjá henni árið 1940. Björg Jóhannsdóttir var margar vetrarvertíðir sjóbúðarbústýra, eins og það var kallað, hjá skipshöfnum úr Landeyjum, sem lágu hér við til fiskveiða á vetrarvertíðum. Frú Jónína Jónsdóttir, fyrrv. húsfreyja í Gerði, gaf Byggðarsafninu prjónastokkinn."
Aðrar upplýsingar
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Gefandi: Jónína Ingibjörg Jónsdóttir
Eigandi: Björg Jóhannsdóttir
Gefandi: Jónína Ingibjörg Jónsdóttir
Eigandi: Björg Jóhannsdóttir
Safnnúmer
617
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Prjónastokkur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.