Klukka

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "566. Klukka – veggklukka. Þessa veggklukku áttu héraðslæknishjónin í Landlyst (1865-1905) Þorsteinn Jónsson og frú Matthildur Magnúsdóttir. Hjónin áttu klukku þessa um tugi ára. Þegar læknishjónin fluttu héðan árið 1905, gáfu þau hjónunum á Hjalla við Vestmannabraut (nr. 57) klukkuna, en þau voru þá frú Kristólína Bergsteinsdóttir og Sveinn Pálsson Scheving meðhjálpari. Einar Einarsson frá Norðurgarði eignaðist síðan klukkuna og flutti hana með sér til Reykjavíkur. Þegar hana féll frá, var hún send Byggðarsafninu samkvæmt beiðni hans. Upprunalega var annar kassi skrautlegri um klukkuverkið, en hann fór forgörðum veturinn 1918 í kulda og raka frostavetrarins mikla, og smíðaði þá Ágúst kennari og smiður Árnason í Baldurshaga (nr. 5 A) við Vesturveg þennan klukkukassa. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
566
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Klukka
Efnisorð:
Veggklukka
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.