Þorsteinn Jónsson

17.11.1840 - 13.8.1908
Staða
Læknir, Alþingismaður, Héraðslæknir
Staður
Staður: Landlyst, Vestmannaeyjabær, Skansinn, Ísland Núverandi sveitarfélag: Vestmannaeyjabær, Vestmannaeyjabær Sveitarfélag 1950: Vestmannaeyjar Staður: Miðkökkur, Sveitarfélagið Árborg, Flói, Ísland Sveitarfélag 1950: Stokkseyrarhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Þorsteinn var fæddur á Miðkekki í Flóa. Foreldrar hans voru Jón Þorsteinsson bóndi og Þórdís Þorsteinsdóttir. Hann stundaði nám í læknisfræði hjá Jóni Hjaltalín landlækni og varð cand.med. 1865. Hann var héraðslæknir í Vestmannaeyjum 1867-1905. Varð eftir það prófdómari við læknapróf og bóksali. Hann var forseti Bátaábyrgðarfélgs Vestmannaeyja og alþingismaður Vestmannaeyinga um tveggja ára skeið. Hann var heiðursfélagi Hins íslenska náttúrufræðifélags. Kona hans var Matthildur Magnúsdóttir. Sjá safnnr. 1925:12. Lækningaáhald. Sonur: Magnús prestur á Mosfelli.
Tengd aðföng