Hallamælir

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"448. Hallamælir, skaftfellskur. Hringmynduð mahoníplata með merkjum. Um hana leikur lóð. Þessi hallamælir er íslenzk uppfinning frá Herjólfsstöðum í Álftaveri. Hjörtur bóndi Bjarnason á Herjólfsstöðum fann upp fyrirmyndina að tæki þessu árið 1864. Hallamælir sinn notaði hann t. d. til þess að fá jafnan halla á hússperrur, þegar þök voru sett á byggingar. Hannes bóndi Hjartarson á Herjólfsstöðum erfði fyrirmynd þessa mælis (frumsmíði föður síns), þegar faðir hans lést 1887. Eftir frumsmíðinni er þessi hallamælir sniðinn og gjörður. Á plötunni er fangamark þeirra feðga, H. B. og H. H. og ártölin 1864 og 1968. Þennan hallamæli smíðaði Hannes bóndi sjálfur og gaf hann Byggðarsafninu fyrir atbeina Friðþjófs Mássonar frá Valhöll (nr. 43A við Strandveg) hér í bæ. "
Aðrar upplýsingar
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Eigandi: Hannes Hjartarson
Gefandi: Hannes Hjartarson
Eigandi: Hjörtur Bjarnason
Eigandi: Hannes Hjartarson
Gefandi: Hannes Hjartarson
Eigandi: Hjörtur Bjarnason
Safnnúmer
448
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hallamælir
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.