Alinmál

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"427. Alinmál. Lengdareiningunni alin var skipt í tvö fet og hverju feti í tólf þumlunga (da.: tommur), þannig mældust 24 þumlungar í einni alin. Alinmál var málstokkur, sem almennt var notaður til þess að mæla álnavöru (kramvöru) í búð. Allir, sem stunduðu trésmíðar, notuðu þessa lengdareiningu, (þetta mælitæki). Í einum faðmi eru þrjár álnir, svo sem enn er kunnugt. Svo kallað metrakerfi var leitt í lög 1907. (nr. 33, 16. nóv. 1907). Mörg ár eftir það notaði almenningur í landinu alin að lengdareiningu, bæði við smíðar og vefnað. Fyrst og fremst var þjóðinni samkv. lögum gefin nokkur frestur til þess að samlaga sig og sitt metrakerfinu, og svo tók það hana nokkur ár að bera skyn á það fullkomlega, svo að ekki skeikaði í notkun þess. Þetta alinmál átti og notaði Árni Filippusson, gjaldkeri í Ásgarði við Heimagötu (nr. 29), en hann var smiður góður og iðkaði smíðar í tómstundum sínum um tugi ára, a. m. k. framan af ævi. Börn hans gáfu Byggðarsafninu alinmálið. "
Aðrar upplýsingar
Eigandi: Árni Filipusson
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Gefandi: Guðmundur Árnason
Gefandi: Katrín Árnadóttir
Gefandi: Filippus Árnason
Gefandi: Guðrún Árnadóttir
Gefandi: Lúðvík Jónsson
Gefandi: Ágústína Jónsdóttir
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Gefandi: Guðmundur Árnason
Gefandi: Katrín Árnadóttir
Gefandi: Filippus Árnason
Gefandi: Guðrún Árnadóttir
Gefandi: Lúðvík Jónsson
Gefandi: Ágústína Jónsdóttir
Safnnúmer
427
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Alinmál
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.