Hurðarskrá, skráð e. hlutv.

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "285. Króaskrár. Byggðarsafnið á nokkrar skrár frá hinum gömlu fiskkróm eða aðgerðar og fisksöltunarhúsum útvegsbænda í Eyjum. (Sjá Blik 1971, bls. 141). Þær eru allar smíðaðar úr koparblendnum málmi, svo að þær stæðust ásókn seltunnar í lofti og legi. Allar þessar skrár hefur sami maðurinn smíðað: Magnús bóndi og smiður Eyjólfsson á Kirkjubæ. Þessa króarskrá átti Stefán útgerðarmaður Björnsson í Skuld. Frú Margrét Jónsdóttir, kona hans, gaf Byggðarsafninu skrána eftir hans dag."

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
285
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.