Fuglasnara

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"409. Svartfuglasnara. Þær voru notaðar hér í Vestmannaeyjum frá ómunatíð fram til ársins 1912 að mér er tjáð. Svartfuglinn var snaraður, þegar hann var einna spakastur og lá sem fastast á egginu eða um það bil, sem egginu var klakið út. Þá voru nálægt 9 vikur af sumri.
Lykkjunni var laumað um háls fuglsins, þar sem hann stóð eða lá á bergsyllunni.
Ólafur Ástgeirsson smíðaði snöruna að tilstuðlan Eyjólfs Gíslasonar á Bessastöðum, en þeir þekktu báðir vel þetta veiðitæki frá uppvaxtarárum sínum hér í Eyjum. "
Aðrar upplýsingar
Safnnúmer
409
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Fuglasnara
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.