Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar um ferðir þeirra á Íslandi árin 1752-1757
1772
Varðveitt hjá
Þórbergssetur
Texti gjafabréfs sem fylgdi ritinu er eftirfarandi: Ég, Kolbrún Sigurbjörg Ingólfsdóttir, fæddist á Höfn í Hornafirði árið 1943 eða fyrir tæpum 75 árum. Ég hef alltaf borið hlýjar tilfinningar til íbúa í Sveitarfélaginu Hornafirði og á ég þar bæði ættingja og vini. Þess vegna færi ég íbúum sveitarfélagsins bók að gjöf, frumútgáfu Ferðabókar Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar, sem kom út í Danmörku árið 1772 í tveimur bindum, fyrir tæpum 250 árum. Bókin er sjaldgæf enda er hún aðeins til í sex opinberum söfnum fyrir utan Landsbókasafnið og Árnastofnun, samkvæmt Gegni (leitir.is). Bókin er ekki skráð í Bókasafni Hornafjarðar.
Bókargjöfin er í minningu foreldra minna, Ingólfs Ólafssonar verslunarmanns og Huldu Guðlaugsdóttur húsmóður svo og fósturafa míns Jóns Ívarssonar, sem var lengi kaupfélagsstjóri á Höfn, og fósturömmu minnar Guðríðar Jónsdóttur.
Bókin er gefin til varðveislu á Þórbergssetri í Suðursveit, en ég var í sveit á Skálafelli og á góðar minningar þaðan eins og annars staðar úr sveitarfélaginu.
Sveitarfélaginu Hornafirði 13. október 2017. Virðingarfyllst, Kolbrún S. Ingólfsdóttir.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar um ferðir þeirra á Íslandi árin 1752-1757
Ártal
Aldur: 1772
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: Þ-216
Stærð
25 x 21 x 5 cm
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ferðabók







