Þórbergssetur
Þórbergssetur á Hala í Suðursveit er sjálfseignastofnun sem hóf starfsemi 1. júlí 2006. Þórbergssetur er menningarsetur í sveit stofnað til minningar um Þórberg Þórðarson rithöfund (1888-1974) sem fæddist á Hala og ólst þar upp til 18 ára aldurs. Þórbergur hefur gert Suðursveit að þekktri sveit á Íslandi með verkum sínum. Í Þórbergssetri er skemmtileg upplifunarsýning, hönnuð af Jóni Þórissyni leikmyndahönnuði, þar sem hægt er að fræðast um rithöfundinn Þórberg Þórðarson, ævi hans og verk. Einnig er fjölbreytt menningarstarf í setrinu svo sem málþing, bókmenntahátíðir, listsýningar, ljósmyndasýningar, tónleikar og ýmsir aðrir viðburðir. Þórbergssetur er fjölsóttur ferðamannastaður og innlendir sem erlendir gestir njóta þar þjóðlegra veitinga og skoða sig um á staðnum. Þórbergur Þórðarson er talinn einn merkasti rithöfundur 20. aldar á Íslandi, enda hlaut hann virðingaheitið meistari Þórbergur vegna undraverðrar færni í ritun á íslenska tungu.



