Hrífa

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "337. Hrífa með brúnspónstíndum. Brúnspónn var fluttur til landsins fyrir 1870 og notaður í hrífutinda. Á Suðurlandi mun hann hafa verið tekinn í notkun nokkru síðar en á Norðurlandi. Hrífutindar úr járni voru orðnir algengir um 1920. Gefandi frú Jónína Jónsdóttir húsfrú í Gerði. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
337
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hrífa
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.