Hefilbekkur

1900 - 1904
Þetta er hefilbekkur sem Magnús á Grund í Eyjafirði smíðaði og var hefilbekkurinn notaður við smíði Grundarkirkju en hún var byggð frá 15.júní 1904 til 11.nóv.1905 og vígð 12.nóv.1905. Magnús hefur því útbúið þennan hefilbekk fyrir 1904 eða um aldarmótin síðustu. Pálína Snæbjörnsdóttir á Grund seldi Árna Sigurbergssyni Einholti 5 Akureyri hefilbekkinn árið 1981. Árni fluttist suður til Reykjavíkur árið 1986 og gaf þá Minjasafninu á Akureyri hefilbekkinn. Má ennþá notast við hefilbekkinn því hann er enn í ágætu ástandi og er mjög traust smíði. Þar sem hann er mjóstur er hann 59 sm. Hann er geymdur í norður kjallara Minjasafnsins.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1900 - 1904
Safnnúmer
Safnnúmer A: 5276 Safnnúmer B: 1986-5276
Stærð
198 x 86 x 0 cm Lengd: 198 Breidd: 86 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Grund 1, 601-Akureyri, Eyjafjarðarsveit
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hefilbekkur

Upprunastaður

65°31'7.3"N 18°9'17.9"W