Skatthol

1860 - 1870
Brúnmálað skatthol úr eik. Skattholið er í tveim hlutum, í neðri hluta eru þrjár stórar skúffur og á hverri kringlótt skráarlauf úr kopar og tveir kringlóttir koparskildir með áföstum griphringum. Í efri hlutanum er halllok sem lagt er niður á útdrög og þá notað sem skrifborð. Neðan við halllokið og á milli útdraganna er ein skúffa 7 sm djúp. Á henni er samskonar skráarlauf og griphringir og á fyrrnefndum skúffum en á útdrögum eru koparhúnar. Þegar halllokið er opnað blasa við sex skúffur, þrjár til hvorrar handar en á milli þeirra er hurð á hjörum með skrá og koparlaufi og innan við hana er hólf og tvær litlar skúffur. Á öllum skúffunum innan við halllokið eru litlir koparhúnar. Neðst á skattholinu er utanáliggjandi sökkull 10 sm. breiður og 3 sm. þykkur. Skattholið hefur verið hinn prýðilegasti gripur en er nú mjög af sér gengið og þarfnast mikilla aðgerða. Það hefur oft verið málað þykkri málningu sem hlaupið hefur í hnökra, slíka málningu þarf að fjarlægja. Skattholið var fyrst í eigu Jóhanns Pálssonar Fornhaga og gæti verið frá því um 1860-1870.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1860 - 1870
Safnnúmer
Safnnúmer A: 3364
Stærð
110 x 560 x 100 cm Lengd: 110 Breidd: 560 Hæð: 100 cm
Staður
Staður: Fornhagi, 601-Akureyri, Hörgársveit, Hörgárdalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skatthol

Upprunastaður

65°43'46.9"N 18°21'3.7"W